Ágúst Borgþór segir það að vera smámæltur sé nánast gáfumerki. Mikið vona ég að það sé satt.
Ég hafði ekki hugmynd um að ég væri smámælt (þmámælþt) fyrr en ég var send í talkennslu í 7 eða 8 ára bekk. Þar var ég látin spila slönguspilið með endalausum ESS orðum og botnaði ekkert í þessu. Heyrði bara engan mun á þessu.
Þannig að enn þann dag í dag verð ég að passa mig alla daga alltaf, að þmámælþtu eþþþin mín sleppi ekki út.
Þetta gerist þó þegar ég verð þreytt þá bara get ég ekki einbeitt mér og verð eins og Jamie Oliver. Huggulegt.
Hérna eru fréttamenn á BBC sumir svo smámæltir – þetta má semsagt alveg hérna úti. Er mikið að spá í finna sjálfa mig á ný og fara að tala eins og ég tala í alvörunni.
Best að byrja á að blogga smámælt til að venja mig við.
Annaþþss er óþþþköp lítiðþþ aþþ frétta nema við erum að fá góða geþþti veiiii.
Hafiði séð Rocky horror picture show?
Allavega þá er þetta ein uppáhaldsmyndin mín og mér datt Riff Raff í hug í dag þegar ég sá dularfulla nágrannann minn.
Hann kemur semsagt út úr húsinu á þriðjudögum þegar ruslið er tekið svo hann geti gramsað í því og karlarnir gefa honum öll dagblöðin sem við hin sem erum nokkuð normal, hendum.
Hvar er leyni James Bond njósnamyndavélin mín á svona stundum????
Þvílík sjón!!! Mest misheppnaða yfirgreiðsla á skalla sem ég hef séð – held að hárið (sem flaksaðist eins og í sjampóauglýsingu) hafi verið ca 40 cm á lengd.
Hann var voða reffilegur í jakkafötum. En ég held að þessi jakkaföt hafi hangið útí glugga í ca 17 ár þar sem önnur hliðin á þeim var algjörlega upplituð – drapplituð öðrum megin og dökk brún hinum megin.
Svo sá ég inn í ganginn hjá honum – ómægoooooottttt nú veit ég að hann verður að hafa opna hurðina svo hann hreinlega kafni ekki úr skít bara ojjjjjjjjjjjjj.
Vissum að þarna er miðstöð kóngulóa í Englandi því kóngulóavefirnir voru hnausþykkir og rykið – fæ bar ofnæmiskast við að hugsa um þetta hrooooolllllllur…….
Ég bauð honum samt góðan daginn.
Varla hægt að lesa blogg frá Íslandi lengur. Allir a tala um þetta blessaða idol og við hérna tjallarnir höfum ekki séð einn þátt. Veit að það var einhver stelpa sem vann núna og hann þarna Kalli eitthvað í fyrra (hef samt held ég ekki heyrt lag með honum enn).
Allavega þá var ég alveg jafn húkkt og íslenska þjóðin yfir idol þegar Xfactor var í gangi hérna. Rosa spennandi og skemmtilegt. Skildi samt ekki alveg þegar ég fór að reyna að tala um þennan snilldarþátt (sem við öll í Bow vorum farin að fylgjast með) að fólk bara vissi ekki um hvað ég var að tala. Jújú þá var á BBC á sama tíma Strictly come dancing þar sem fólk er að læra að dansa samkvæmisdansa og keppir svo á laugardögum – ofboðslega fúll þáttur fannst mér. En dansdæmið var helmingi vinsælli en Xfactor ótrúlegt en satt – þá áttaði ég mig betur á því hvað þetta er ógeðslega stór borg og hvað fólk hérna er mismunandi, og hvað það eru margar sjónvarpstöðvar þannig að maður getur varla rabbað við mann og annan um sjónvarpsdagskrána – enda er það óttaleg tímasóun held ég.
Betra að lesa góða bók bara – er að lesa The Surgeon og hún er svo ógeðsleg í byrjun að ég þori varla að lesa lengra. Nógu myrkfælin fyrir – best að setja keðjuna og stóra lásinn fyrir hurðina bara.
Var að fá bestu fréttir dagsins :)
Haldiði ekki að Sigga litla systir mín sé ekki að koma til London. Fékk gefins ferð hingað og tónleikamiða vúhúuuuu. Dóri er bestur vei vei!!!
Hún verður allt of stutt bara. Ég þarf að hamast að taka til fyrst hún er að koma og verður með nefið oní öllu hérna.
Hún er svo forvitin að ég held að hana hlakki jafn mikið til að sjá nýja húsið eins og að fara að sjá Stuðmenn.